Fékk ekki hreindýr í fyrsta úrdrætti

Póstur sem ég fékk á mánudagskvöld varðandi hreindýraumsókn mína.

 elfar

 

Dregið var úr innsendum umsóknum um hreindýraveiðileyfi þann 19.

febrúar sl. Fjöldi leyfa var 1.137 og fullgildar umsóknir sem bárust voru 2.634. Af þeim fengu 1.137 úthlutað dýri í fyrstu umferð.

Því miður fékkst þú ekki úthlutað dýri í fyrstu tilraun. Af þeim sem sóttu um hreinkú á svæði 8 varst þú númer 55 en kvótinn var 25 dýr. Þetta þýðir að 29 eru á undan þér í röðinni

Staðfestingargjald verður að greiða fyrir 1. apríl en eftir þann tíma verður úthlutað þeim leyfum sem eftir standa.Gera má ráð fyrir að hluti af leyfunum komi aftur í sölu og verða þá seld þeim sem eru næstir í biðröð og síðan þeim sem voru með umsókn til vara á viðkomandi svæði. Þú munt fá sent bréf um úthlutun um miðjan apríl ef umsókn þín hefur verið afgreidd á þann hátt. Verklagsreglur úthlutunar eru á vefslóðinni
http://www.hreindyr.is ef þú vilt kynna þér þær nánar.

Með bestu kveðju,

 

Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ æ - en leiðinlegt

en ekki er öll von úti enn

kveðja - Brynja

Brynja Dadda (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband