Fékk ekki úthluta hreindýraveiðileyfi á svæði 8 annað árið í röð!

Kæri veiðimaður!

 Dregið var úr innsendum umsóknum um hreindýraveiðileyfi þann 23. febrúar sl.

 Fjöldi leyfa var 1.333 og fullgildar umsóknir sem bárust voru 3.038. Af þeim fengu 1.333 úthlutað dýri í fyrstu umferð.  Því miður fékkst þú ekki úthlutað dýri í fyrstu tilraun.

Af þeim sem sóttu um hreinkú á svæði 8 varst þú númer  48  en kvótinn var 38 dýr. Þetta þýðir að 9 eru á undan þér í röðinni 

Staðfestingargjald verður að greiða fyrir 1. apríl en eftir þann tíma verður úthlutað þeim leyfum sem eftir standa.Gera má ráð fyrir að hluti af leyfunum komi aftur í sölu og verða þá seld þeim sem eru næstir í biðröð og síðan þeim sem voru með umsókn til vara á viðkomandi svæði. Þú munt fá sent bréf um úthlutun um miðjan apríl ef umsókn þín hefur verið afgreidd á þann hátt.

Verklagsreglur úthlutunar eru á vefslóðinni http://www.hreindyr.is ef þú vilt kynna þér þær nánar. Með bestu kveðju,  

Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband